Ítalskur maður hefur verið handtekinn fyrir að drepa systur sína og höggva líkama hennar í hluta sem hann svo henti í ruslatunnur í einu af fínni hverfum Rómarborgar.
Dagblaðið Corriere della Sera og aðrir ítalskir fréttamiðlar greindu frá því í dag að Maurizio Diotallevi, 62 ára, hafi játað að hafa myrt systur sína Nicolettu, 59 ára, eftir rifrildi þeirra á milli sem snerist um peninga.
Á þriðjudag fann ung kona fótleggi konunnar í ruslatunnu í Parioli, eitt af dýrustu hverfum borgarinnar, og lét lögreglu vita. Daginn eftir fundust höfuð og bringa fórnarlambsins í annarri ruslatunnu nálægt heimili þeirra systkina.
Í kjölfarið handtók lögreglan Diotallevi eftir að upptökur úr öryggismyndavél sýndu hann henda einhverju í ruslatunnuna þar sem fótleggirnir fundust.