1 látinn og 2 særðir í árás við Parsons Green

Lögreglumenn að störfum við Parsons Green neðanjarðarlestarstöðina eftir hryðjuverkaárásina í …
Lögreglumenn að störfum við Parsons Green neðanjarðarlestarstöðina eftir hryðjuverkaárásina í síðasta mánuði. AFP

Einn lést og tveir eru særðir eftir árás við Parsons Green neðanjarðarlestastöðina í London. BBC hefur eftir Scotland Yard að ekki sé talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Árásin átti sér stað skömmu eftir hálfátta í kvöld og hefur árásarmaðurinn en ekki verið handtekinn, en 30 manns særðust í hryðjuverkaárás á lest við Parsons Green stöðina í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert