Dylan Farrow, dóttir bandaríska leikstjórans Woodys Allens, segir að sér sé misboðið eftir að hafa verið hunsuð árum saman. Enginn hafi trúað henni og henni hafi verið ýtt til hliðar.
Farrow kom fram í morgunþætti sjónvarpsstöðvarinnar CBS þar sem hún ræddi ásakanir sínar gagnvart Allen. Viðtalið í heild sinni verður sýnt á stöðinni á morgun.
Farrow, sem er 32 ára gömul, hefur áður sagt frá því að Allen hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi þegar hún var sjö ára gömul. Leikstjórinn hefur ávallt neitað. Farrow sagðist í viðtalinu vera sár og reið.
„Af hverju ætti ég ekki að vera reið og sár? Ég hef verið hunsuð í öll þessi ár,“ sagði Farrow og sagðist reið yfir því að fólk gefi í skyn að eina ástæða þess að hún tjái sig um málið núna sé #metoo-byltingin.
„Ég get bara sagt sannleikann og vonað að einhver trúi mér,“ sagði Farrow.
Allen var yfirheyrður árið 1992 vegna ásakana Farrow en hún sagði að hann hefði beitt hana kynferðislegri áreitni á háalofti á heimili þeirra.
„Hann sagði mér að leggjast á magann og leika með rafmagnslest sem bróðir minn átti. Síðan misnotaði hann mig. Á meðan hann gerði það hvíslaði hann að mér að ég væri góð stelpa, þetta væri okkar leyndarmál og lofaði að fara með mig til Parísar og gera mig að stjörnu í kvikmyndum sínum,“ skrifaði Farrow í opnu bréfi í New York Times fyrir rúmum þremur árum.
Allen var ekki ákærður og hefur ávallt sagt að ásakanirnar séu uppspuni.