Harður jarðskjálfti reið yfir höfuðborg Indónesíu, Jakarta, fyrir skömmu. Ekki hefur verið tilkynnt um meiðsl á fólki en skjálftinn var 6,4 stig.
Skjálftinn átti upptök sín á 10 dýpi fyrir utan eyjuna Jövu. Rýma þurfti einhverjar byggingar vegna skjálftans en ekki var gefin út flóðbylgjuviðvörur í kjölfar skjálftans.