Húsleit hjá Cambridge Analytica

Lögreglubíll ekur framhjá höfuðstöðvum Cambridge Analytica í London.
Lögreglubíll ekur framhjá höfuðstöðvum Cambridge Analytica í London. AFP

Breskir rannsakendur hafa hafið húsleit í skrifstofum fyrirtækisins Cambridge Analytica.

Hæstiréttur í London veitti í dag leyfi fyrir húsleitinni.

Elizabeth Denham sem fer fyrir upplýsingamálum í Bretlandi óskaði eftir henni.

Rannsókn hennar snýst um hvort fyrirtækið hafi komist á ólöglegan hátt yfir upplýsingar á Facebook í pólitískum tilgangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert