Börnin berjast fyrir lífi sínu

Frá vettvangi í Aubervilliers nú undir kvöld.
Frá vettvangi í Aubervilliers nú undir kvöld. AFP

Fimm börn berjast nú fyrir lífi sínu, eftir eldsvoða í Aubersvilliers, úthverfi Parísarborgar. Alls eru sjö alvarlega slasaðir eftir brunann, að sögn slökkviliðsmanna.

Nokkrir lögregluþjónar slösuðust einnig lítillega í brunanum, en búið er að ráða niðurlögum eldsins, sem kviknaði á háalofti í tvílyftu íbúðarhúsnæði. Hundrað slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðum á vettvangi, en ekki liggur fyrir af hverju eldurinn kviknaði.

Annar alvarlegur bruni varð í þessu sama úthverfi fyrir minna en mánuði. Þá lést ein kona og þrjú börn hennar, auk þess sem níu aðrir slösuðust.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert