Þyrla Vichai Srivaddhanaprabha, eiganda knattspyrnufélagsins Leicester City, brást ekki við skipununum flugmannsins þegar hún hrapaði fyrir utan heimavöll félagsins í lok síðasta mánaðar. Þetta eru niðurstöður frumrannsóknar á tildrögum slyssins að því er BBC greinir frá.
Vichai og fjórir aðrir sem voru um borð í þyrlunni, fórust allir. Breska samgönguslysanefndin AAIB segir að þyrlan hafi byrjað að beygja til hægri þvert á aðgerðir flugmannsins. Segir nefndin enn vera unnið að rannsókn á því hvað hafi valdið því að flugmaðurinn missti stjórn á þyrlunni.
Myndbandsupptökur sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum sýna þyrluna, sem var af gerðinni AgustaWestland AW169, hækka flug eðlilega í um 40 sekúndur eða svo áður en hún stöðvast og hringsnerist á leið niður.
Búið er að panta öryggisprófanir á þyrlum sömu gerðar og beinast athuganirnar einkum að stjórnkerfi stélþyrilsins.