Tékkneskur karlmaður kveikti í sjálfum sér í dag á Wenceslas-torgi í miðborg Prag, höfuðborgar Tékklands, hvar námsmaðurinn og aðgerðasinninn Jan Palach gerði slíkt hið sama fyrir 50 árum síðan til þess að mótmæla hernámi Sovétríkjanna á Tékkóslóvakíu.
Fram kemur í frétt AFP að maðurinn hafi verið fluttur á sjúkrahús með brunasár á höfði og á höndum. Lögreglan segir manninn vera fæddan árið 1964 og að hann hafi notað eldfiman vökva þegar hann hafi kveikt í sér. Vegfarendur hafi slökkt í honum.
Brunasár þekja um 30% líkama mannsins og er honum haldið sofandi.