Hóta að beita skotvopnum gegn mótmælendum

Lögregluyfirvöld í Hong Kong hóta því nú að beita skotvopnum gegn þeim mótmælendum sem beita hættulegum vopnum á borð við bensínsprengjum gegn þeim.

Guardian greinir frá og segir átök milli óeirðalögreglu og mótmælenda hafa náð nýjum hæðum í dag. 

Þannig særðist einn lögreglumaður  er hann fékk ör í fót­legg­inn, sem skotið hafði verið af boga, á meðan mót­mæli fóru fram fyr­ir utan PolyU-há­skól­ann fyrr í dag. Grímu­klædd­ur bogamaður skaut ör­inni í kálfa lög­reglu­manns­ins sem sá um ör­ygg­is­gæslu fyr­ir utan há­skól­ann.

Eftir rúmlega 12 tíma átök við skólann þar sem lögregla beitti táragasi og vatnsbyssum og ók brynvörðum bíl í átt að mótmælendum sem köstuðu bensínssprengjum, tilkynnti lögregla að hún myndu beita skotvopnum gegn „óeirðaseggjum“ hættu þeir ekki að beita banvænum vopnum gegn lögreglu.

Mótmælendur tóku háskólann yfir í átökum síðustu viku og var háskólasvæðið í dag vettvangur lengstu og spennuþrungnustu átaka sem orðið hafa milli mótmælenda og lögreglu frá því að mótmælin hófust fyrir fimm mánuðum síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert