Íslendingar ekki í sóttkví við komuna til Danmerkur

Íslendingar þurfa ekki að dvelja í sóttkví við komuna til …
Íslendingar þurfa ekki að dvelja í sóttkví við komuna til Kaupmannahafnar, heldur er hægt að skella sér beint út. AFP

Íslendingar þurfa ekki að dvelja í sóttkví við komuna til Danmerkur samkvæmt reglum sem tóku gildi þar í landi fyrir tveimur dögum ef þeir framvísa neikvæðu Covid-prófi og eru neikvæðir í skimun við komuna til landsins.

Ísland og nokkur héruð í Noregi eru undanskilin sóttkví við komuna til Danmerkur, að því er fram kemur í tilkynningu á vef danska utanríkisráðuneytisins.

Farið er eftir smitfjölda í löndum og því gæti staða Íslands breyst, fjölgi smitum hér á landi. Ísland er nú í gulum flokki. 

Ef Ísland er skilgreint í appelsínugulum flokki samkvæmt smittölum má ferðast með lögmætu erindi til Danmerkur og krafa er gerð um framvísun neikvæðrar skimunar og skimunar við komu, ásamt sóttkví, en smittölur eru uppfærðar vikulega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert