Urðu fílar og antilópur eldingu að bráð?

Menn huga að fílshræi í Assamríki á Indlandi engrunur leikur …
Menn huga að fílshræi í Assamríki á Indlandi engrunur leikur á að eldinghafi orðið því að aldurtila. AFP

Upplýst var á föstudaginn að um 350 Saiga-antilópur, sem eru í bráðri útrýmingarhættu, hefðu drepist í Kasakstan, að því er talið er af völdum eldingar. Menn fundu hræin á grónu flatlendi í vesturhluta landsins. Antilópur fjölga sér gjarnan á þessum árstíma en Saiga eru frægar fyrir óvenjulegt og þrútið nef sitt. Í yfirlýsingu frá umhverfisráðuneyti Kasakstans kemur fram að elding sé líklegasta skýring dauðsfallanna en ummerki fundust þar um á hræjunum. AFP-fréttaveitan greinir frá.

Samkvæmt „rauðum lista“ Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna (IUCN) er Saiga-stofninn í hópi þeirra fimm antilópustofna sem eru í mestri útrýmingarhættu en aðeins munu vera um 124 þúsund stálpuð dýr eftir.

Langflest þeirra er að finna í Kasakstan en einnig í Rússlandi og Mongólíu. Aðeins eru sex ár síðan um 200 þúsund dýr, sem var vel yfir helmingur heildarstofnsins á þeim tíma, drápust af völdum svæsinnar nefbakteríu sem dreifði sér í óvenju miklum hita og raka.

Saiga-antilópurnar eruauþekkjanlegar á breiðuog óvenjulegu nefinu.
Saiga-antilópurnar eruauþekkjanlegar á breiðuog óvenjulegu nefinu. AFP

Saiga-antilópunum stafar þess utan stöðug ógn af veiðiþjófum en mikil eftirspurn er eftir hornum þeirra vegna lyfs sem lengi hefur verið framleitt í Kína. Yfirvöld í Kasakstan hafa sagt veiðiþjófum stríð á hendur eftir að þeir urðu tveimur landvörðum að bana árið 2019.

Rannsókn hafin á Indlandi

Eldingum virðist hafa lostið niður víðar en á fimmtudaginn var skýrt frá því að alla vega átján fílar á Indlandi hefðu orðið þeim að bráð. Í gær fyrirskipuðu yfirvöld á hinn bóginn rannsókn á málinu eftir að málsmetandi náttúruverndarsinni, Soumyadeep Datta, lýsti efasemdum um að kenningin um eldinguna gæti staðist. Það mat byggir hann á ljósmyndum sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum.

Hjörðin sáluga fannst í Kandali-skóglendinu í Assamríki sem til stendur að friða. Það voru umsjónarmenn skógarins sem tjáðu AFP-fréttaveitunni að fílarnir hefðu orðið fyrir eldingu.

„Skýringin á dauða fílanna gæti verið eitrun,“ sagði Datta við AFP. „Við verðum að bíða eftir niðurstöðum krufningar sem fara mun fram innan tíðar.“

Hópur dýralækna og embættismanna stefndi skónum á vettvang á föstudaginn, ásamt Parimal Shuklabaidya, skógar- og umhverfismálaráðherra Assam.

Nær 30 þúsund fílar eru á Indlandi, eða um 60% allra villtra fíla í Asíu.

Það verður æ algengara að menn verði fílum að bana og öfugt enda ágangur þeirra fyrrnefndu í skóglendi alltaf að aukast.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert