Leita eftirlifenda í húsarústum

Mikil hungursneyð hefur ríkt í Afganistan en valdarán talíbana hefur …
Mikil hungursneyð hefur ríkt í Afganistan en valdarán talíbana hefur hindrað mannúðaraðstoð til landsins. AFP

Að minnsta kosti 26 létu lífið í gær þegar jarðskjálfti, 5,3 að stærð, reið yfir hið afskekkta Badghis-hérað í Afganistan. Fjöldi húsa skemmdist en umfangsmikil leit stendur nú yfir að eftirlifendum.

„Jarðskjáltinn olli miklum skemmdum á húsum, um sjö hundrað til þúsund hús hafa eyðilagst,“ segir Baz Mohammad Sarwary, talsmaður héraðsins, í myndskeiði.

„Það er möguleiki að tala látinna gæti hækkað,“ bætir hann við.

Mörg fórnarlömb létu lífið þegar þök húsa féllu saman.

Jarðskjálftinn hafði einnig áhrif á Muqr-hérað en tölur yfir fjölda látinna eða særðra liggja enn ekki fyrir.

Talíbanar aðstoða við leitina

Myndskeið ganga nú á samfélagsmiðlum þar sem sjá má íbúa svæðisins, þar á meðal börn, leita í rústum húsa sinna að eigum sínum og nauðsynjum.

Inamullah Samangani, talsmaður yfirvalda talíbana, sagði viðbragðsaðila á vettvangi vera að leita að eftirlifendum og aðstoða við að flytja særða á spítala.

Teymi á vegum talíbana hefur einnig komið til að aðstoða.

Mikil krísa ríkir nú þegar í Afganistan sökum hungursneyðar en mikill þurrkur hefur verið í landinu. Stöðva þurfti mannúðaraðstoð til landsins á vegum ýmissa landa í kjölfar valdayfirtöku talíbana. Bætti það stöðuna ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert