Skrikaði fótur og féll ofan í sprungu

Jim Morrison og Hilaree Nelson.
Jim Morrison og Hilaree Nelson. Ljósmynd/Instagram

Björgunarsveitir í Nepal vinna nú hörðum höndum að því að finna skíðakonuna Hilaree Nelson eftir að hún féll í ofan í sprungu áttunda hæsta fjalls heims, Manaslu í Nepal, í gær. Þá lét einn lífið í snjóflóði sem átti sér stað neðar í fjallinu sama dag.

Frá þessu er greint á BBC.

Áður en atvikið átti sér stað hafði Nelson, ásamt maka sínum, komist á tind fjallsins. Kortéri síðar skrikaði henni fótur sem varð til þess að hún féll ofan í 600 metra djúpa sprunguna.

Jim Morrison, maki hennar, er sagður hafa komist heill á húfi til baka eftir atvikið. Nelson komst í sögubækurnar þegar hún varð fyrst kvenna til að klifra Everest og Lhotse samdægurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert