Staðfest dauðsföll í lestarslysinu sem varð í Austur-Odisha héraði á Indlandi í dag eru nú komin yfir 207 talsins. Þar að auki eru 850 manns slasaðir, margir alvarlega.
Slysið gerðist um klukkan 19 að staðartíma þegar þrjár lestir skullu saman, þar af tvær farþegalestir.
„Þetta er afar sorglegt atvik og batahorfur eru ekki góðar,“ segir Sudhanshu Sarangi, varðstjóri slökkviliðsins í Odisha, og bætir við að margir hafi hlotið slæma höfuðáverka.
Hann segir marga enn alvarlega slasaða og að tala staðfestra dauðsfalla geti hækkað.