Konur á Pitcairn verja sakborninga

Akkerið af kaupskipinu Bounty er til sýnis á Pitcairn.
Akkerið af kaupskipinu Bounty er til sýnis á Pitcairn. AP

Hópur kvenna á afskekktu Kyrrahafseyjunni Pitcairn hélt blaðamannafund í morgun og gagnrýndi réttarhöld yfir sjö karlmönnum sem hafa verið ákærðir fyrir fjölda kynferðisglæpa. Segja konurnar að það sé venja á eynni að stúlkur hafi kynmök frá 12 ára aldri.

Ríkisútvarp Nýja-Sjálands segir að konurnar hafi boðað til blaðamannafundarins til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en réttarhöldin hefjast á morgun. Pitcairn, sem tilheyrir Bretlandi, er afskekkt eyja, um 2160 km frá Tahítí. Hún er aðeins um 5 ferkílómetrar að stærð og íbúarnir eru 47, flestir afkomendur skipverja af breska kaupskipinu Bounty sem flúðu til eyjarinnar eftir sögufræga uppreisn um borð í skipinu fyrir tveimur öldum.

„Ég var ung, en ég hélt að ég væri þroskuð og ef ég gerði þetta yrði ég stór stelpa," sagði Carol Warren við ríkissjónvarp Nýja-Sjálands. Hún viðurkenndi að hafa fyrst haft kynmök 12 ára.

Hún sagðist vona að réttarhöldin yrðu ekki löng. „Þetta er eins og mara sem hefur hvílt yfir okkur allt of lengi."

Meralda Warren sagðist einnig hafa verið mjög ung þegar hún hafði fyrst kynmök „en ég vissi hvað ég var að gera," sagði hún. „Í mínum huga hefur engum verið nauðgað á eynni svo ég viti til. Ég neita að trúa því að eitthvað slíkt hafi gerst... en auðvitað veit ég ekki allt."

Breski blaðamaðurinn Dea Birkett dvaldi á Pitcairn í nokkra mánuði og skrifaði bók um dvölina árið 1997. Þar segir hún að eyjarskeggjar myndi sambönd sem litin væru hornauga annars staðar, vegna þess að þeir eigi einskis annars úrkosti. Þannig deili systur eiginmanni, unglingsstúlkur eigi í sambandi við eldri karlmenn, konur eignist barn með nokkrum mönnum, og eignist jafnvel fyrstu börn sín 15 ára.

Nýsjálenska útvarpið sagði frá því í gærkvöldi, að sakborningarnir sjö, um helmingur fullorðinna karlmanna á eynni, hafi neitað því að lýsa sig seka. Búist er við, að málsvörn mannanna felist í því, að bresk lög gildi ekki á eynni.

26 manna hópur lögmanna og dómara frá Nýja-Sjálandi fór til Pitcairn til að stjórna dómsrannsókninni og þangað er einnig kominn hópur blaðamanna. Átta konur, sem áður bjuggu á eyjunni, munu bera vitni gegn mönnunum gegnum gervihnattasíma frá Nýja-Sjálandi.

Rannsókn málsins hófst árið 1999 eftir að ung kona á eynni bar fram kvörtun við breska lögreglukonu, sem var gestkomandi á eynni. Bresk lögregluyfirvöld hafa stýrt rannsókninni.

Eyjan var óbyggð þegar Fletcher Christian og félagar hans sem gerðu uppreisn gegn William Bligh, skipstjóra á breska kaupskipinu Bounty, komu til eyjarinnar ásamt eiginkonum sínum frá Tahítí árið 1790. Yngsta barnið á Pitcairn er afkomandi Christians og heitir Emily Rose Christian. Hún fæddist í september í fyrra og þá hafði ekki fæðst barn á eynni í 17 ár.

Lifnaðarhættir á Pitcairn eru nokkuð frumstæðir á flestra mælikvarða. Þannig er rafmagn skammtað og kaupfélagið er aðeins opið þrisvar í viku. Flestir eyjaskeggar eru aðventistar og þeir tala eigin mállýsku, sem er blanda af ensku og tungumáli sem Tahítíbúar tala.

Lendingin í Pitcarin.
Lendingin í Pitcarin. AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert