Áfrýjunardómstóll hafnar kröfu foreldra Terri Schiavo

Hópur fólks stóð utan við dómhúsið í Atlanta í nótt …
Hópur fólks stóð utan við dómhúsið í Atlanta í nótt og krafðist þess að Terri Schiavo fái á ný næringu í æð. AP

Áfrýjunardómstóll í Atlanta í Bandaríkjunum hafnaði í morgun kröfu foreldra Terri Schiavo um að Schiavo fái á ný næringu í æð. Schiavo er mjög heilasködduð og slanga, sem hefur séð henni fyrir næringu í æð, var tekin úr sambandi sl. föstudag að ósk eiginmanns Schiavo eftir að dómari hafði heimilað það. Foreldrarnir segjast ætla að áfrýja málinu áfram.

Tveir dómarar af þremur, sem sitja í dómstólnum í Atlanta, höfnuðu kröfu foreldranna. Í gær hafnaði alríkisdómari í Flórída kröfunni einnig en málið kom til kasta hans eftir að Bandaríkjaþing samþykkti í miklum flýti á sunnudag lagafrumvarp sem gerði foreldrum Schiavo kleift að halda málinu áfram.

Lögmaður Bobs og Mary Schindler, foreldra Schiavo, sagði að málinu yrði áfrýjað til æðra dómstigs en foreldrarnir væru staðráðin í að bjarga lífi dóttur sinnar. Þau sögðu í gær, að mjög hefði dregið af Terri og hún kynni að deyja þá og þegar.

Næringarslangan var tekin úr sambandi á föstudag og sögðu læknar þá að Schiavo, sem er 41 árs, gæti lifað í 1-2 vikur án þess að fá næringu.

Mary og Bob Schindler, foreldrar Terri Schiavo.
Mary og Bob Schindler, foreldrar Terri Schiavo. AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert