Forseti Malaví, Bingu wa Mutharika, hefur lýst yfir þjóðarhörmungum vegna skorts á matarbirgðum í landinu sem ógnar um helmingi íbúa landsins. Forsetinn sagði í sjónvarps- og útvarpsútsendingu að ástandið hafi versnað og að landið þyrfti á hjálp að halda, að því er segir á vef BBC. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um fimm milljónir manna muni þurfa á aðstoð að halda.
Ástæðu neyðarástandsins má m.a. rekja til verstu uppskeru í landinu í áratug. Muthtarika hefur verið ásakaður um að neita fréttum af dauðsföllum vegna veikinda tengdum hungri í Malaví.
Að sögn forsetans er matarskortur í öllum 28 héruðum landsins. Þörf er á 144.000 tonnum af mat til viðbótar þeim 300.000 sem von er á frá Suður-Afríku. Þurrkar, skortur á fræjum og áburði auk áhrif alnæmisveirunnar eru sagðar eiga sinn þátt í því hörmungarástandi sem nú vofir yfir í landinu.