Leitað að jeppanum á norðanverðum Vestfjörðum

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar af norðanverðum Vestfjörðum hófu leit að jeppanum, sem leitað hefur verið frá því á föstudag, á ellefta tímanum í morgun en í gærkvöldi komu fram vísbendingar um að sést hafi til jeppans í Hrútafirði á þriðjudag og að hann hafi þá verið á vesturleið.

Um er að ræða rauðan Izusu Trooper jeppa, af árgerð 1982, með bílnúmerinu U-3949 og gömlum númeraplötum og eru þeir sem hafa orðið varir við ferðir hans beðnir um að hafa samband við Lögregluna í Reykjavík.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert