Teri Hatcher vill „sofa hjá“; hefur ekki farið á „deit“ í tvö ár

Teri Hatcher.
Teri Hatcher. Reuters

Aðþrengda eiginkonan Teri Hatcher, sem í eigin lífi hefur ekki verið eiginkona síðan hún skildi við manninn sinn fyrir tveim árum, segist endilega vilja sofa hjá - en það verði að vera maður sem elski hana.

„Mér finnst ég of gömul til að sofa bara hjá einhverjum. Ég meina, ég vil kynlíf, en það verður að vera með einhverjum sem virkilega elskar mig.“

Frá þessu greinir Ananova og hefur upp úr viðtali við Hatcher í Daily Mirror.

Hatcher er fertug. Hún viðurkennir ennfremur í viðtalinu að síðan hún skildi við manninn sinn, leikarann Jon Tenney, fyrir tveim árum, hafi hún ekki farið á eitt einasta stefnumót.

„Það er ekki einn einasti maður í lífi mínu. Ég held að þetta hljóti að vera það sem plagar hverja einustu einhleypa konu - hvar hittir maður einhleypa menn?“ segir Hatcher.

Hún segist ekki vilja fara út með öðrum leikurum - slíkt sé ekki góð blanda.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson