Enn krytur á Bláregnsslóð

Tvöföld forsíða Vanity Fair: Teri Hatcher, Eva Longoria, Nicolette Sheridan, …
Tvöföld forsíða Vanity Fair: Teri Hatcher, Eva Longoria, Nicolette Sheridan, Marcia Cross og Felicity Huffman. Myndina tók Mark Seliger. AP

Enn ganga sögur um krytur milli aðþrengdu eiginkvennanna við Bláregnsslóð. Sú nýjasta hermir að Teri Hatcher hafi þverneitað að sitja fyrir á myndum með Felicity Huffman og Emmyverðlaunastyttunni sem sú síðarnefnda eignaðist um helgina. Teri og Marcia Cross voru auk Felicity tilnefndar fyrir aðalhlutverk í gamanþáttum og það var Felicity sem vann.

Mun það lítt hafa kætt þær Teri og Marciu, að því er Ananova greinir frá og hefur eftir New York Post.

„Felicity vildi fá mynd með öllum meðleikkonum sínum og þær voru allar til í það nema Teri,“ hefur blaðið eftir heimildarmanni. Hann segir einnig að Felicity hafi verið meinaður aðgangur að partíi eftir verðlaunaafhendinguna og segir hún að það hafi ekkert þýtt fyrir sig að veifa styttunni.

Ekki er þetta í fyrsta sinn sem sögusagnir komast á kreik um erjur milli aðþrengdu kvennanna. Þegar forsíðumyndin á Vanity Fair var tekin í sumar mun Teri hafa haft mjög ákveðnar hugmyndir um hver ætti að vera hvar á myndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson