Deila um PlayStation kostaði mann lífið

PlayStation 2
PlayStation 2

Arthur Demaurice Priestly, 29 ára, hefur játað að hafa myrt félaga sinn, James Edwards Jr., 24 ára, þegar þeir deildu um notkun á PlayStation leikjatölvu heima hjá Priestley. Hefur Priestley verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið af dómara í Georgíuríki í Bandaríkjunum.

Mennirnir höfðu drukkið ótæpilega þegar þeir voru að grilla heima hjá Priestly. Lentu þeir í rifrildi um hvernig tónlist ætti að spila í PlayStation leikjatölvunni og lyktaði rifrildinu með því að Priestly skaut vin sinn og vinnufélaga til bana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert