Ungliðahreyfingar „tjarnarkvartettsins" gefa út sameiginlega ályktun

Ungliðahreyfingar Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungir stuðningsmenn Margrétar Sverrisdóttur hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem mikilvægi samstöðu félagshyggjuaflanna í borginni er ítrekuð og þau hvött til þess að sameinast gegn upplausn í borgarstjórn Reykjavíkur út kjörtímabilið.

„Þessi samstaða er lykilatriði í því að úthýsa ruglinu úr ráðhúsinu", segir í tilkynningunni.

Þá segir að komið hafi í ljós að þessi skyndilegu og ástæðulausu umskipti byggi ekki á málefnaágreiningi heldur séu þau til komin vegna þess að sjálfstæðismenn í borgarstjórn séu tilbúnir að gera allt sem þurfi til að ná aftur völdum eftir að hafa hrökklast frá vegna hneykslismála.

„Nýr meirihluti verður auk þess óstarfhæfur vegna ósamstöðu meðal Sjálfstæðismanna og manneklu innan klofins F-lista sem eykur enn á óstöðugleikann í stjórnkerfi Reykjavíkur. Reykvíkingar eiga betra skilið en að borgarstjórn þeirra leysist upp í baktjaldamakk  og valdatafl. Nýr meirihluti var augljóslega myndaður á röngum forsendum og enn er hægt að hætta við."

Ungliðahreyfingarnar hvetja í tilkynningunni alla sem mögulega geta til þess að mæta til mótmæla fyrir framan ráðhús Reykjavíkur klukkan 11.45 á morgun fimmtudag, og koma skoðun sinni á þessu athæfi á framfæri áður en fundur borgarstjórnar hefst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert