Dorgað í gegnum ís

Skammt frá hraðbrautum höfuðborgarinnar er hægt að dorga silung í gegnum ís í ró og næði. Wolfgang Pomorin staðarhaldari á Reynisvatni segir að margir noti ísdorg til slökunar.

Það er ekki mikil hefð fyrir ísdorgi á höfuðborgarsvæðinu en Pomorin segir að nú sé hægt að stóla á það í tvo mánuði á ári. 

Hann segir að hópar sæki í aðstöðuna við Reynisvatn til að skemmta sér við ísdorg og matreiða svo fenginn saman á eftir. 

Heimasíða Reynisvatns

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert