Segir hækkun bera vott um ákveðna taugaveiklun

VIlhjálmur Egilsson
VIlhjálmur Egilsson

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir hækkun stýrivaxta nú bera vott um ákveðna taugaveiklun hjá Seðlabanka Íslands. Aðspurður um hvort þetta hafi ekki verið viðbúið þá segir hann það svo vera miðað við hvernig bankinn hugsar. Hann telji þetta hins vegar ekki rétt viðbrögð sem skapi meiri ótrúverðugleika íslensks efnahags- og fjármálalífs.

„Krónan er komin allt of lágt niður og hún mun hækka aftur og hefði gert það án þessarar vaxtahækkunar. Ég held því að þessi vaxtahækkun sé mjög misráðin," segir Vilhjálmur. 

Hvað varðar kjarasamninga þá segir Vilhjálmur að menn hafi verulegar áhyggjur af þessari þróun og verðbólgunni. Það sé brýnt að hún lækki.

„Það skiptir miklu máli að halda sér fast og draga djúpt inn andann. Þessi sveifla niðurávið  nú er jafn vitlaus og þegar sveiflan var upp á við og gengisvísitalan fór í 110," segir Vilhjálmur.

Segir Vilhjálmur að allar sveiflur á gjaldeyrismörkuðum séu mjög slæmar fyrir íslenskt atvinnulíf en hann telji að ástandið sem nú ríkir sé ekki eitthvað sem er komið til að vera. „En fyrir alla sem skulda í erlendum gjaldmiðlum, það er hafa verið að kaupa inn erlendum gjaldmiðlum og selja í krónum, hafa orðið fyrir verulegu áfalli nú líkt og þegar gengið hækkaði þá var staðan erfið fyrir þau fyrirtæki sem voru með kostnað í krónum en tekjur í erlendum gjaldmiðlum," segir Vilhjálmur. 

Vilhjálmur segir að Seðlabankinn sjái hins vegar aldrei neina aðra leið færa aðra en að hækka vextina.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert