Friðrik og Mary kynntust íslenska hestinum
Bloggað um fréttina
-
Eva Lind JónsdóttirEr dolfallin yfir danska kongafólkinu ...
-
Asdis SigSkildi Mary vanta varalit ? ég er enn að selja ef
Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa heimsóttu Dalland í morgun og tóku Gunnar Dungal og Þórdís Alda Sigurðardóttir á móti gestum. Eftir stutta sýningu fóru hjónin í reiðtúr með hestum frá Dallandi og Íshestum, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú. Íslenskir gæðingar voru sýndir, og meðal annars riðu knapar með bjórglas í hendi til að sýna hversu mjúkt og lipurt töltið er í íslenska hestinum.
Friðrik og Mary komu til Íslands í opinbera heimsókn í gær og dvelja hér þar til á fimmtudag. Friðrik prins sagði í gær að hann hlakkaði sérstaklega til þess að kynnast íslenska hestinum og að sá dagskrárliður væri einn af þeim sem stæðu upp úr í heimsókn þeirra hjóna. Friðrik og Mary létu vel af reiðtúrnum og sjá má að þau virtust skemmta sér vel.
Fjölbreytt dagskrá bíður hjónanna í dag og fara þau m.a að Nesjavöllum þar sem þeim verður kynnt starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og á hádegi verður haldið til Þingvalla þar sem hjónin borða hádegisverð í boði forsætisráðherra.
Til baka








Senda inn efni

