Farandsali handtekinn á Ísafirði

Ísafjörður.
Ísafjörður. mbl.is/Loftmyndir ehf.

Lögreglan á Vestfjörðum handtók farandsölumann á Ísafirði síðastliðið þriðjudagskvöld, sem hafði verið á ferð í byggðarlögum á norðanverðum Vestfjörðum og líklega víðar um land. 

Maðurinn hafði gengið í hús og boðið til sölu olíumálverk og annan varning, samkvæmt upplýsingum lögreglu.  Maðurinn er af erlendu þjóðerni og hefur hvorki dvalar- né atvinnuleyfi hérlendis.  Hann er grunaður um að hafa flutt varninginn ólöglega til landsins og skorti hann jafnframt nauðsynleg leyfi til sölumennskunnar.  Talið er að atferli mannsins sé m.a. brot á tollalögum, lögum um atvinnuréttindi útlendinga, lögum um verslunaratvinnu og lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar.

Maðurinn gisti fangageymslur á Ísafirði á meðan mál hans var rannsakað og s.l. miðvikudag úrskurðaði Héraðsdómur Vestfjarða að maðurinn skyldi vera í farbanni til 21. júlí skv. beiðni lögreglustjórans á Vestfjörðum.  Lagt hefur verið hald á 905 myndir og muni sem tilheyra manninum auk nokkurs af fjármunum.  Rannsókn málsins er lokið og hefur lögreglustjóri þegar gefið út ákæru á hendur manninum fyrir ofangreind brot.  Maðurinn er frjáls ferða sinna.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert