Varað við miklum vatnavöxtum í ám á Suðurlandi

Af vef lögreglunnar

Lögreglan á Hvolsvelli varar við miklum vatnavöxtum í ám á hálendi innan umdæmisins. Skv. upplýsingum frá Vatnamælingum nú í morgun eru ár á Þórsmerkurleið ófærar. Þeir sem eiga erindi inn á þessar slóðir er bent á að hafa samband við Vegagerðina eða lögreglu vegna upplýsinga um færð.

Lögreglan hefur það sem af er þessari viku aðstoðað nokkra ökumenn sem fest hafa bifreiðar sínar í ám. Slík ferðalög eru hættuleg og eru einungis á færi kunnáttumanna á vel útbúnum jeppum, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert