Úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni

Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni í skólum landsins og í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Svipuð samantekt var einnig unnin fyrir nemendur háskóla og fræðslustofnana landsins.

Markmiðið með vinnunni var að styðja við starfsfólk skóla, fræðslustofnana og stjórnendur íþrótta- og æskulýðsstarfs til að veita viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð. Þessi samantekt var unnin í samstarfi við samráðshóp sem settur var á laggirnar vegna efnahagsástandsins. Í þeim hópi sitja fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Félagi íslenskra framhaldsskóla, Skólameistarafélagi Íslands, Kennarasambandi Íslands, Félagi náms- og starfsráðgjafa, Menntasviði Reykjavíkurborgar og Heimili og skóla.

Úrræðin er að finna á heimasíðu ráðuneytisins, sem og leiðbeiningar sérstaklega ætlaðar börnum og ungmennum um líðan í erfiðum aðstæðum.

Vefur menntamálaráðuneytisins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert