Auðmaður skoðaði skurðstofur

Helga Sigrún Harðardóttir.
Helga Sigrún Harðardóttir. mynd/sudurland.is

Helga Sigrún Harðardóttir, nýr þingmaður Framsóknarflokksins, spurði heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag hvaða erindi þekktur auðmaður hafi átt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á dögunum með starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins. Sagði Helga Sigrún að umræddur maður muni hafa sýnt skurðstofum, sem til stendur að loka, sérstakan áhuga.

Spurði Helga Sigrún hvaða hlutverki auðmönnum væri ætlað í endurskipulagningu heilbrigðiskerfisins.  

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, sagðist ekki geta   svarað fyrir einstakar heimsóknir fólks á sjúkrahús. Þá sagði hann auðmönnum ekki ætlað sérstakt hlutverk í heilbrigðiskerfinu að öðru leyti en því að þeir kynnu að þurfa á þjónustu þess að halda eins og aðrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert