Borgarráð samþykkti samhljóða í morgun að halda byggingu Tónlistarhússins áfram. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segist vonast til þess að Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn verði klárað árið 2011. Framkvæmdinni muni því seinka um eitt ár.
Í samtali við Morgunblaðið í dag sagði Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar, að drög að samkomulagi liggi fyrir um að Austurhöfn taki yfir félagið Portus sem átti að byggja og reka húsið. Með í kaupunum fylgja systurfélögin Totus og Situs. Totus er fasteignafélag um byggingu hússins en hið síðarnefnda á lóðar- og byggingarréttindi á svæðinu.
Gert er ráð fyrir fjármögnun frá Nýja Landsbankanum en kostnaður við þann hluta hússins sem eftir er er áætlaður 13-14 milljarðar króna. Um helmingur af því gæti fallið til á þessu ári. Fjármögnunarþættinum er hins vegar ekki lokið og óljóst hver framkvæmdahraðinn verður.
Félagið Austurhöfn er að meirihluta í eigu ríkisins, eða 54%. Reykjavíkurborg á 46% hlut. Að sögn Stefáns verður samið við Íslenska aðalverktaka á grundvelli fyrri samninga.
Samkomulagið verður kynnt nánar á sameiginlegum blaðamannafundi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra og menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, síðar í dag.