Boða beint flug frá Akureyri til Lundúna

Matthías Imsland
Matthías Imsland mbl.is/G.Rúnar

Iceland Express ætlar að hefja beint áætlunarflug frá Akureyri til Lundúna næsta sumar. Fyrst um sinn er gert ráð fyrir vikulegu flugi, á mánudögum. Flogið verður á Gatwick flugvöll. Fyrst um sinn er gert ráð fyrir vikulegu flugi, á mánudögum, að því er segir í fréttatilkynningu.
 
„Iceland Express hefur um langt skeið haft hug á því að efla þjónustu við landsbyggðina og er þetta liður í því,” sagði Matthías Imsland forstjóri félagsins, þegar hann tilkynnti um þessa nýjung á vegum félagsins á Akureyrarflugvelli í dag.

 „Ljóst er, að með þessu flugi styttist til muna ferðatíminn fyrir Akureyringa og nærsveitamenn, því nú þurfa þeir ekki að koma sér fyrst suður á leið sinni til útlanda,” bætti hann við, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert