Einar Karl ráðinn upplýsingafulltrúi

Einar Karl Haraldsson.
Einar Karl Haraldsson.

Einar Karl Haraldsson tók í dag til starfa sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins en Kristján Kristjánsson lét af því starfi í gær þegar tímabundinni ráðningu hans lauk. Einar Karl er ráðinn til sex mánaða.

Einar Karl hefur starfað sem sérfræðingur í forsætisráðuneytinu í sumar og leyst af aðstoðarmann ráðherra. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður iðnaðarráðherra sl. tvö ár. Þar áður starfaði hann lengi sem ritstjóri dagblaða, fyrir Norðurlandaráð og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í almannatengslum.

Einar Karl lagði stund á stjórnmálafræði í Toulouse í Frakklandi og í Stokkhólmi á námsárum sínum og síðar á markaðs- og útflutningsfræði hjá EHÍ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert