Hlaup rauf varnargarða í Fljótshlíð

Vatnamælingamenn að störfum við Markarfljót.
Vatnamælingamenn að störfum við Markarfljót. mbl.is/Ómar

Gos hefur verið jafnt og stöðugt í allan dag. Stórt vatnsflóð kom niður Gígjökul kl. 18.30 er að fara niður í byggð. Rauf það varnargarða í Fljótshlíð við Þórólfsfell á leið sinni til sjávar. Svo virðist sem að báðar brýrnar yfir Markarfljót hafi sloppið. Vatnið vex enn við nýju brúna.

Öskufall hefur verið mikið í allan dag og aðallega bundið við svæðið á milli Hjörleifshöfða og Kirkjubæjarklausturs. Ekki sást handaskil þegar verst var.  Vegurinn á milli Kirkjubæjarklausturs og Víkur var opnaður þegar leið á daginn og öskufall minnkaði þegar leið á kvöldið. 

Flúorinnihald hættulegt búpeningi

Greining á ösku hefur leitt í ljós að flúorinnihald er hættulegt búpeningi þegar öskulag er meira en 1 cm.   Vel er fylgst með eldingum og þær hafa verið bundnar við gosmökkinn hingað til.   Erlendir fjölmiðlar hafa fylgst náið með gangi mála og eru mjög áhugasamir um framvindu gossins.  

Í dag var unnið að því að greina áhrif öskunnar á lýðheilsu og var ráðist í að þýða tvo bæklinga varðandi áhrif öskufalls á lýðheilsu og helstu varnir gegn öskufalli.   Einnig hófst dreifing á öndunargrímum til heilsugæslustöðva og viðbragðsaðila.  Björgunarsveitir hafa staðsett tvo brynvarða bíla á gossvæðinu og er annar á Kirkjubæjarklaustri en hinn er á Vík. 

Hvað varðar öskufall þá gerir veðurspáin ráð fyrir að vindur fari í norðanátt og þá má búast við öskufalli undir Eyjafjöllum og í Vestmannaeyjum þegar líður á morgundaginn.  Öskufallið hefur haft gríðarleg áhrif á flugumferð bæði hér heima og erlendis.   Farþegar eru tepptir hér á landi og einnig eru margir farþegar sem bíða eftir að komast til landsins.   Í dag hefur innanlandsflugið gengið eðlilega og eins er Ameríkuflugið opið en miklar truflanir eru á öllu Evrópuflugi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert