Stórflóð á leið úr Gígjökli

Vatnið kemur undan Gígjökli.
Vatnið kemur undan Gígjökli. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Almannavarnir hafa gefið skipun um allsherjarrýmingu í Fljótshlíð og Landeyjum vegna mikillar hættu á stórflóði úr Gígjökli. Fregnir berast af miklu vatnsmagni sem sé á leið undan skriðjöklinum.

Íbúar eiga að halda umsvifalaust til hærri svæða eða annarra öruggra staða. Gert er ráð fyrir að vatnselgurinn muni rjúfa varnargarða við Þórólfsfell í Fljótshlíð og sé reyndar þegar farið að flæða yfir garðana.
  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert