Flugvellir opnir fram undir morgun

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/RAX

Ný spá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir því að loftrými fyrir Keflavík og Reykjavík verði opið fram eftir nóttu og lokist ekki fyrr en undir morgun vegna ösku í andrúmsloftinu. Miðað er við að ákveðnar takmarkanir verði á flugumferð eftir klukkan 4.

Íslensku flugfélögin hafa gert ráðstafanir vegna þessa. Iceland Express sendir flugvél til Lundúna í kvöld. Sú vél átti upphaflega að fara klukkan 23:30 en brottför hefur verið seinkað til rúmlega eitt. 

Þá hefur Icelandair flýtt nokkrum flugferðum til klukkan 5 í fyrramálið.  Einnig ætlar flugfélagið að fljúga milli Akureyrar og Glasgow. Hafa verið skipulagðar sérstakar rútuferðir milli Akureyrar og Reykjavíkur í tengslum við þau flug.

Einnig Farþegar sem eiga flug til Evrópu frá Bandaríkjunum, munu fljúga á lokaáfangastað gegnum Glasgow. Icelandair mun starfrækja bein flug frá Glasgow til Kaupmannahafnar og Osló.

Farþegar mun Icelandair fljúga beint frá Glasgow til Boston eða New York.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert