Lækka heimild til kaupa á ferðagjaldeyri

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar Óskarsson

Nýjar reglur um gjaldeyrismál taka gildi í dag og samkvæmt þeim lækkar hámarksfjárhæð heimildar til kaupa á erlendum gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350.000 krónur.

Jafnframt hefur verið gerð breyting á sérstökum undanþágum til að taka af allan vafa um ólögmæti svokallaðra aflandsviðskipta.

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum eru nýjar reglur um gjaldeyrismál fegnar út í samræmi við ákvæði lagaen þar er mælt er fyrir um að reglur um gjaldeyrismál skuli endurskoðaðar á sex mánaða fresti.

Fyrir utan að lækka hámarksfjárhæð til ferðagjaldeyris fela þær breytingar sem hafa verið gerðar á eldri reglum að mestu í sér orðlagsbreytingar til að tryggja samræmi í skýringu og túlkun þeirra.


 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert