Boða til mótmæla í dag

Mótmæli halda áfram við alþingishúsið í dag. Hópurinn sem boðaði mótmælin á Facebook í gær vekur athygli á því að þingfundur hefst klukkan 14 í dag og standi fram eftir kvöldi. Liðlega hundrað segjast ætla að mæta.

„Efnið er fjárlagafrumvarpið en samkvæmt því er boðaður gífurlegur niðurskurður í heilbrigðis- og menntamálum. Engar kjarabætur fyrir bótaþega og engar úrbætur fyrir húsnæðislánagreiðendur. Þetta þýðir að við fáum eingöngu meira af því sama þrátt fyrir það að mörg okkar erum þegar komin í þrot.

Þess vegna höldum við áfram að mótmæla á morgun [í dag] en ekki síður vegna þess að nú veit þjóðin að hún getur ekki treyst núverandi þingmönnum sem er það fyrirmunað að koma fram af heiðarleika og réttlæti. Lausnin er því ekki þjóðstjórn eða nýjar alþingiskosningar.

Atkvæðagreiðslan um landsdóm síðastliðinn þriðjudaginn færði þjóðinni heim sanninn um það að stór hluti þingheims telur sig yfir alla ábyrgð hafinn. Þess vegna stöndum við frammi fyrir því að alþingiskosningar myndu ekki skila okkur neinu nema sömu mafíunni aftur. Mafíunni sem setja bankaelítuna og peningamennina alltaf í fyrsta sæti.

Lýðræðisleg lausn gæti verið þjóðkjör um þingrof því núverandi þing er því miður handónýtt. Jóhanna ætti svo að óska eftir hugmyndum almennings í landinu að samsetningu nýs þings frekar en reyna að hræra upp í gömlum graut,“ segir í tilkynningu um viðburðinn á tunnutakssíðunni.

Mikill fjöldi mótmælti á Austurvelli í gærkvöldi, flestir friðsamlega en …
Mikill fjöldi mótmælti á Austurvelli í gærkvöldi, flestir friðsamlega en tiltölulega lítill hópur lét ófriðlega. Kveikt var í vörubrettum og fleiru svo úr varð mikið bál. mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert