Gamlir munir til góðra mála

KK er óneitanlega sýslumannslegur með hamarinn.
KK er óneitanlega sýslumannslegur með hamarinn. mbl.is/Eggert

„Þegar við fáum upp úr kössunum svona skemmtilega og óvænta gamla hluti þá höldum við upp á þá til þess að geta boðið þá upp á uppboði sem þessu,“ segir Halldóra Eldon, aðstoðarverslunarstjóri Góða hirðisins.

Í gær fór fram uppboð á sérstökum munum í húsnæði hans sem stjórnað var af tónlistarmanninum KK. Að sögn Halldóru seldust munir á því fyrir 380 þúsund krónur á þeim eina klukkutíma sem uppboðið stóð yfir.

Góði hirðirinn hefur áður staðið fyrir uppboðum sem þessu en ágóðanum af þeim er varið til sérstakra verkefna á sviði góðgerðarmála. Að þessu sinni rann hann til Bjarkaráss sem veitir fötluðu fólki dagþjónustu, hæfingu og vinnu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert