Réttindalaus á 183 km/klst

Lögreglan á Akureyri hafði undir morgun afskipti af ökumanni í Héðinsfjarðargöngum sem keyrði á 183 km/klst hraða en hámarkshraðinn er 70 km/klst. Til að bæta gráu ofan á svart var ökumaðurinn 16 ára gamall og því réttindalaus.

Að auki hafði lögreglan afskipti af tveimur öðrum ökumönnum sem grunaðir voru um ölvun við akstur. Við nánari athugun kom í ljós að hvorugur þeirra var með ökuréttindi þar sem þeir höfðu ekki löngu áður verið fundnir sekir um ölvunarakstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert