Byggðarhátíðin Reykhóladagar stóð þangað til síðdegis í gær. Á vef Reykhólahrepps segir að hátíðin hafi heppnast eins vel og framast mátti verða.
Á vefnum segir að erfitt sé að áætla af nákvæmni fjölda gesta á hátíðinni, en þeir skiptu að minnsta kosti mörgum hundruðum. Gestum á hátíðinni fjölgar ár frá ári og mannfjöldinn í Reykhólaþorpi margfaldast á Reykhóladögum.
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri segir í samtali við vef Reykhólahrepps að hún sé mjög ánægð með hátíðina. Íbúar í hreppnum taki aukinn þátt í henni með hverju árinu og veðrið hafi verið með hátíðargestum í liði þetta árið.