Í dag ræddu framkvæmdastjórar kertaverksmiðjunnar Heimaeyjar og Hjálparstarfs kirkjunnar saman vegna framleiðslu á friðarljósum sem Heimaey hefur framleitt til margra ára. Sala á ljósunum hefur dregist saman að undanförnu samhliða harðnandi verðsamkeppni á markaði.
Fram kemur í tilkynningu Hjálparstarfs kirkjunnar að sú ákvörðun að flytja inn fullunnin kerti frá Póllandi hafi verið gagnrýnd að undanförnu.
„Hjálparstarfinu þykir leitt að upplýsingagjöf til Heimaeyjar á stöðu mála og grundvöllur ákvörðunar um að flytja inn fullunnin kerti árið 2013 hafi ekki verið sem skyldi. Heimaey hefði viljað fá betri aðkomu og möguleika á að bjóða í fullunnin Friðarljós,“ segir í tilkynningu.
Munu aðilar nú í sameiningu skoða þessi mál í fullri hreinskilni og ræða möguleika á áframhaldandi samstarfi, að því er fram kemur í tilkynningu.