Fjör í fjöltefli Hróksins í Nuuk

Ung og kát stúlka á skákhátíð Hróksins í Nuuk.
Ung og kát stúlka á skákhátíð Hróksins í Nuuk. Hrókurinn

Liðsmenn Skákfélagsins Hróksins stóðu í dag fyrir fjöltefli í verslunarmiðstöðinni Nuuk Center á Grænlandi þar sem tugir heimamanna á öllum aldri spreyttu sig á móti Hróksmönnum. Félagið hefur staðið fyrir skákhátíð í Nuuk síðustu vikuna.

Hátíðin hófst á miðvikudag með heimsókn Hróksliða í Sukisaar Saarfik, sem er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Þar voru afhentar gjafir frá prjónahópi Rauða krossins í Reykjavík, sem fara í jólapakka handa tugum einstaklinga. Þaðan lá leiðin á heimili fyrir börn, sem ekki geta verið heima hjá sér vegna erfiðra aðstæðna. 19 börn á aldrinum 1 til 15 ára fengu veglega jólapakka, og Hrókurinn mun í framhaldinu senda athvarfinu föt úr söfnun Hróksins á Íslandi.

Hróksliðar heimsóttu fæðingardeild sjúkrahússins í Nuuk, þar sem Ella Skifte yfirhjúkrunarfræðingur tók við gjöfum handa framtíðarfólki Grænlands. Þá var leikskólinn Puliaq heimsóttur þar sem um 40 börn fengu gjafir frá Íslandi.

Þá hafa Hróksmenn að hitt vini sína í Skákfélagi Nuuk, sem er virkur þátttakandi í hátíðinni. Á laugardag verður Grænlandsmót Einars Ben haldið í Nuuk Center, en samnefndur veitingastaður er einn af bakhjörlum hátíðarinnar. Helstu styrktaraðilar eru grænlenska fyrirtækið TELE-POST og Flugfélag Íslands auk þess sem utanríkisráðuneytið á Íslandi styrkir hátíðina. Mörg íslensk fyrirtæki gefa verðlaun og vinninga, m.a. Nói Síríus, 12 tónar og Ísspor.

Þetta er fjórða ferð Hróksins til Grænlands á þessu ári, en alls hafa liðsmenn félagsins farið í um 40 ferðir til Grænlands, að boða fagnaðarerindi skáklistarinnar og vináttunnar.

Grænlenskar skákdrottningar.
Grænlenskar skákdrottningar. Hrókurinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert