Fundað næst í lok ársins

Viðræðufundum í kjaradeilum lækna og skurðlækna lauk um kvöldmatarleytið samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissáttasemjara.

Fundur hefur verið boðaður í viðræðum lækna 29. desember næstkomandi klukkan 14:00 og í viðræðum skurðlækna 30. desember klukkan 13:00.

Ríkissáttasemjari fól deiluaðilum að nota tímann fram að næstu fundum til þess að skoða ákveðna hluti að sögn skrifstofustjóra embættisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert