Ölfus sigraði Stykkishólm í Útsvari

Lið Ölfuss í kvöld.
Lið Ölfuss í kvöld. Skjáskot af vef RÚV

Lið Ölfuss bar í kvöld sigur úr býtum í viðureign liðsins við Stykkishólm í spurningakeppninni Útsvar á RÚV.

Hlaut Ölfus 79 stig gegn 53 stigum Stykkishólms. Er lið Ölfuss þar með komið í átta liða úrslit keppninnar þar sem það mætir liði Seltjarnarnesbæjar næsta föstudag.

Viðureignir í átta liða úrslitum:

Seltjarnarnes - Ölfus

Akureyri - Skagafjörður

Reykjavík - Reykjanesbær

Hafnarfjörður - Fljótdalshérað

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert