Brunavarnir Árnessýslu hafa lokið störfum sínum við sumarhús á Þingvöllum en tilkynnt var um eld í skúr við bústaðinn um klukkan 21 í kvöld. „Skúrinn skemmdist töluvert en ekki sumarbústaðurinn sjálfur og ekki gróðurinn,“ segir Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu í samtali við mbl.is.
Kristján segir að grunur leiki á að kviknaði hafi í skúrnum vegna rafmagns en getur þó ekki staðfest það enda engin niðurstaða komin í rannsókn málsins.
Eigandi sumarbústaðsins hafði samband við Neyðarlínuna eftir að eldurinn kviknaði en hann óttaðist að eldurinn færi í aðalhúsið. Slökkviliðsmenn frá Laugarvatni og frá Selfossi fóru á vettvang og þegar þeir komu á staðinn var eigandinn langt kominn með að slökkva eldinn.
Fyrri frétt mbl.is:
Eldur í sumarhúsi við Þingvelli