Guðlaugur Þór Þórðarson, ritari Sjálfstæðisflokksins og þingmaður, var kjörinn varaformaður Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna (AECR) um helgina á ráðsfundi samtakanna, sem haldinn var í Winchester í Bretlandi.
Hann tekur við af Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem verið hefur varaformaður undanfarin fjögur ár. Sigríður Ásthildur Andersen þingmaður var kjörin í ráð samtakanna, að því er segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Guðlaugur Þór hefur setið í ráði AECR undanfarin fjögur ár og tekið virkan þátt í mótun stefnu samtakanna sem hafa vaxið ört á undanförnum árum. Hann tók sem formaður SUS árið 1993 jafnframt þátt í stofnun Ungra evrópskra íhaldsmanna (European Young Conservatives), sem eiga í náinni samvinnu við AECR, segir í tilkynningunni.
AECR eru alþjóðleg samtök stjórnmálaflokka sem aðhyllast Evrópu- og alþjóðasamstarf sem og hugmyndir um einstaklingsfrelsi, þingræði og virðingu fyrir fullveldi þjóðríkja. Helstu stefnumál AECR eru aukið viðskipta- og athafnafrelsi, áhersla á frjáls og sanngjörn viðskipti, lækkun skatta, takmörkun ríkisvalds í þágu einstaklingsfrelsis og þjóðarhags. Þá leggja þau megináherslu á vestrænt samstarf, m.a. innan NATO. Einnig vilja samtökin að orkuöryggi í formi sjálfbærrar og hreinnar orku sé tryggt.