Kaldasti maí í höfuðborginni frá 1979

Ekkert hefur dugað annað en vera vel klæddur í höfuðborginni …
Ekkert hefur dugað annað en vera vel klæddur í höfuðborginni í maí. mbl.is/Ómar Óskarsson

Það sem af er er yfirstandandi maímánuður sá fjórði kaldasti í Reykjavík frá 1949 og sá kaldasti frá 1979, að sögn Trausta Jónssonar, veðurfræðings.

Ástandið hefur verið aðeins skárra fyrir norðan og austan en í höfuðborginni. Suðvesturlandið hefur orðið hvað verst úti í nöprum, vestlægum áttum en aðrir landshlutar sloppið betur við þær.

Auk þess að vera fræðimaður er Trausti einnig áhugamaður um veður. Hann skrifar bloggið Hungurdiska og er með síðu á Fjasbók [Facebook] undir sama nafni. Undanfarið hefur hann birt færslur um þennan kuldalega maí.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert