Lakavegur allur opinn

Vegurinn inn að Lakagígum liggur yfir Galta og þar er …
Vegurinn inn að Lakagígum liggur yfir Galta og þar er ágætur útsýnisstaður. Hér litið til austurs, Síðujökull í baksýn. Gísli Sigurðsson

Búið er að opna austurhluta hringvegarins á Lakasvæðinu, en hann hefur verið lokaður vegna aurbleytu til þessa. Fjallvegir opnuðust margir hverjir mjög seint í ár vegna tíðarfars, en þeir hafa verið að opnast hver af öðrum og eru nú flestir af helstu fjallvegum opnir. Þó eru áfram nokkur svæði lokuð, en sjá má yfirlitskort frá Vegagerðinni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert