Grunnskólar verða opnir á morgun

Grunnskólar í Reykjavík verða opnir á morgun eins og staðan …
Grunnskólar í Reykjavík verða opnir á morgun eins og staðan er nú. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Veðurspáin fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun bendir til að börn gætu átt erfitt með að komast til skóla. Grunnskólar Reykjavíkurborgar verða opnir en röskun gæti orðið á starfi þeirra að því segir á vef Reykjavíkurborgar. Foreldrar eru beðnir að fylgjast vel með veðurspám og tilkynningum í fjölmiðlum.

Samkvæmt reglum sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út um röskun á skólastarfi vegna óveðurs er það á ábyrgð foreldra að taka ákvörðun um hvort senda eigi börn í skólann þegar veður er vont.

En þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á höfuð­ borgarsvæðinu er fylgst gaumgæfilega með og gefnar út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.

Um er að ræða tvö möugleg viðbúnaðarstig vegna óveðurs. Þegar viðbúnaðarstig 1 á við verður röskun á skólastarfi vegna erfiðleika starfsfólks og nemenda við að komast til skóla og  foreldrar fylgi börnum í skólann. En ef viðbúnaðarstig 2 á við fellur skólahald niður.

Í tilmælum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu um röskun á skólastarfi vegna óveðurs kemur fram að þegar óveður er í aðsigi er kappkostað að koma tilkynningum tímanlega á framfæri í samvinnu við fjölmiðla. Miðað er við að tilkynningar berist foreldrum og forráðamönnum ekki seinna en klukkan 7 að morgni sé tekin ákvörðun um viðbúnaðarstig við upphaf skóladags.

Er foreldrum bent á að símkerfi skóla eru að jafnaði ekki undir það búin að anna miklu álagi og því er mælt með því að fylgjast með tilkynningum og afla upplýsinga í fjölmiðlum, á heimasíðum skóla og á shs.is. „Foreldrar skulu ævinlega leita eftir staðfestum tilkynningum yfirvalda um viðbúnaðarstig en forðast að láta stjórnast af mati nemenda á aðstæðum,“ segir í tilmælum slökkviliðsins.

Hér má sjá nákvæma lýsingu á viðbúnaðarstigunum tveimur:

Viðbúnaðarstig 1: Röskun á skólastarfi – foreldrar fylgi börnum í skóla Röskun getur orðið á skólastarfi vegna veðurs ef starfsfólk á erfitt með að komast í skóla. Við þessar aðstæður eru skólar engu að síður opnaðir og taka á móti nemendum og þeir geta dvalið þar á meðan skipulagt skólahald á að fara fram. Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgi börnum til skóla og yfirgefi þau alls ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks. Í upphafi skóladags getur verið að mönn­un skóla sé takmörkuð. Foreldrar geta þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum beiðnum vel. Geisi óveður við lok skóladags er metið hvort óhætt sé að senda börnin heim eða hvort ástæða er til að foreldrar sæki börn sín. Þá eru gefnar út tilkynningar um það, auk þess sem skólarnir leggja sig fram um að hafa samband við foreldra.

Viðbúnaðarstig 2: Skólahald fellur niður Séu aðstæður þannig að óhjákvæmilegt sé að fella skólahald niður um tíma vegna veðurs fá fjölmiðlar tilkynningu um það. Þá ber foreldrum að halda börnum sínum heima þangað til tilkynningar berast um annað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert