Skíðasvæðin eru opin

Það er fjör á skíðum.
Það er fjör á skíðum. mbl.is/Styrmir Kári

Skíðaunnendur vítt og breitt um landið geta gert sér glaðan dag á fjöllum því víða er opið.

Það er t.a.m. opið í Bláfjöllum á milli 10 og 17 í dag. Einnig er opið á Siglufirði milli 10 og 16 og á Dalvík á sama tíma. Á Ísafirði er opið í Tungudal milli 10 og 16 en á Seljalandsdal frá klukkan 11.

Skíðasvæði Tindastóls verður opið í dag frá 11 til 16.

Þá er opið í Hlíðarfjalli á Akureyri frá kl. 10-16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert